Viðurkenningin VIRKT fyrirtæki var veitt í þriðja sinn á ársfundi VIRK nýverið og hlaut Securitas nafnbótina að þessu sinni.
Atvinnutenging VIRK er samstarf VIRK við fyrirtæki og stofnanir um ráðningar á einstaklingum sem eru að ljúka starfsendurhæfingu. Markmiðið er að ljúka starfsendurhæfingunni hjá VIRK á farsælan hátt með því að útvega einstaklingum störf við hæfi og fyrirtækjum gott starfsfólk ásamt því að halda uppi virkri atvinnuþátttöku á Íslandi og stuðla að heilbrigðu samfélagi.
Einstaklingar í atvinnutengingu hafa fjölbreytta menntun og starfsreynslu að baki. Öll eiga þau sammerkt að vilja komast á vinnumarkaðinn aftur, sterkari en áður. Þau búa yfir lærdómsvilja og aðlögunarhæfni og hafa tileinkað sér hagnýt bjargráð í starfsendurhæfingunni.
Atvinnulífstenglar VIRK gegna lykilhlutverki í því að tengja einstaklingana við fyrirtæki eða stofnanir út frá óskum beggja og aðstoða einstaklinginn, en ekki síður vinnustaðinn, við aðlögun og endurkomu til vinnu.
Gott samstarf grundvöllurinn
Gott samstarf er grundvöllur atvinnutengingar. Atvinnutenging VIRK er í samstarfi við hundruð fyrirtækja og stofnana varðandi aðstoð við einstaklinga sem eru að ljúka starfsendurhæfingu og vilja stíga skrefin aftur út á vinnumarkaðinn.
Samstarfið við fyrirtæki og stofnanir gengur vel og viðtökur eru góðar - dýrmæt tækifæri hafa orðið til fyrir þjónustuþega VIRK með atvinnutengingu.
VIRK leitar stöðugt eftir samstarfi við ný fyrirtæki og stofnanir. Hægt er að hafa samband við atvinnulífstengla VIRK og fá nánari upplýsingar, m.a. á kombakk.is.
Atvinnulífstenglar VIRK veita á hverju ári fyrirtækjum og stofnunum sem sinnt hafa samstarfinu sérlega vel, sýnt samfélagslega ábyrgð og verið góðar fyrirmyndir öðrum atvinnurekendum viðurkenninguna VIRKT fyrirtæki. Að þessu sinni hlutu 12 fyrirtæki og stofnanir viðurkenninguna VIRKT fyrirtæki.
VIRKT FYRIRTÆKI 2026