VIRK/Þegar kona brotnar - og leiðin út í lífið á ný

Fjölmiðlakonan góðkunna Sirrý Arnardóttir gaf nýverið út bókina Þegar kona brotnar – og leiðin út í lífið á ný sem unnin er í samstarfi við VIRK. Í bókinni segja 12 konur sögu sína af því að kulna, brotna, örmagnast og hvernig þær finna lífsgleðina og starfsorkuna á ný.

Einnig ræðir Sirrý í bókinni við Margréti Sigurðardóttur sagnfræðing og Lindu Báru Lýðsdóttur sálfræðing og sviðsstjóra hjá VIRK auk þess að í henni er að finna hagnýt hollráð. 

Bókin fæst í bókabúðum og hjá Forlaginu, útgefanda bókarinnar.