- 43 stk.
- 17.04.2026
16. apríl 2026 bauð Eining-Iðja félagsmönnum sínum á Matarmenningarhátíð í HOFI þar sem félagsmenn frá 12 ólíkum löndum buðu upp á smakk á mat frá sínu heimalandi.
Hátíðin stóð yfir milli kl. 17:00 og 19:00 og er óhætt að segja að hátíðin hafi verið vel heppnuð. Mikið var af æðislega góðum mat í boði og frábær mæting. Hátíðin fór fram í Hamragil í HOFI og voru allir gestir með bros á vör á meðan gengið var á milli borða og smakkað á öllu góðgætinu.