How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?
Senda þarf inn umsókn og gögn í gegnum Mínar síður Einingar-Iðju í síðasta lagi 17. desember 2026 til að ná síðustu útborgun ársins sem verður 30. desember. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í lok janúar 2027.
Athugið að reikningar og kvittanir eru skráð á það ár sem gögn berast. Dæmi: Þú ferð til sjúkraþjálfara í desember en kemur með kvittun í janúar, þá skráist þetta í janúar, s.s. árið eftir að þú ferð í tíma og fer af rétti þess árs.
Hér má finna ýmsar leiðbeiningar fyrir Mínar síður félagsins, m.a. hvernig á að sækja um styrki