Starfsfólk

Aðalbjörg er þjónustufulltrúi orlofs- og fræðslusjóða, veitir m.a. upplýsingar varðandi styrki úr fræðslusjóðunum Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt. 

Hún hefur umsjón með leigu orlofshúsa og íbúða, skipti á húsum við önnur félög fyrir sumarið og sér um orlofsúthlutanir og allt sem að því lýtur.

Anna er formaður félagsins og gegnir einnig ýmsum trúnaðarstörfum fyrir félagið.

Arnór er lögræðingur og þjónustufulltrúi hjá félaginu.

Hann sér um lögfræðisamskipti, almennar upplýsingar, innheimtumál, gjaldþrot o.fl.

Hann er einnig þjónustufulltrúi Opinberu deildarinnar.

Ásgrímur er upplýsingafulltrúi Einingar-Iðju. Hann sér m.a. um útgáfumál félagsins,  trúnaðarmannakerfið ásamt varaformanni, er starfsmaður aðalstjórnar, samninganefndar og trúnaðarráðs o.fl. Ásgrímur er einnig eftirlitsfulltrúi vegna vinnustaðaeftirlits.

Ásta er þjónustufulltrúi á kjarasviði  og starfsmaður félagsins í Iðnaðar- og tækjadeild.

Elsa er skrifstofustjóri og gjaldkeri félagsins. Hún er jafnframt formaður sjúkrasjóðs.

Nokkur stéttarfélög sem eru starfandi í Eyjafirði og á Norðurlandi vestra gerðu með sér samkomulag árið 2016 um stóraukið vinnustaðaeftirlit með því að ráða einn sameiginlegan starfsmann fyrir svæðið. Nú gegnir Glódís starfinu og starfar fyrir 11 stéttarfélög, er með aðsetur á skrifstofu Einingar-Iðju á Akureyri en skipuleggur og fer í vettvangsferðir á vinnustaði á samningssvæðinu sem er Eyjafjörður, Skagafjörður og Húnavatnssýslur.

Glódís er einnig lögfræðingur á kjarasviði félagsins.

Halla Sif er ráðgjafi í starfsendurhæfingu og starfar fyrir öll félögin á Eyjafjarðarsvæðinu.

Helga er þjónustufulltrúi á skrifstofu Einingar-Iðju á Dalvík.

Helga Þyri er ráðgjafi í starfsendurhæfingu og starfar fyrir öll félögin á Eyjafjarðarsvæðinu.

Helga Þyri er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju í Fjallabyggð einu sinni í viku.

Ína Sif er þjónustufulltrúi á skrifstofu Einingar-Iðju í Fjallabyggð. Vinnutími hennar er alla virka daga milli kl. 9:00 og 13:00.

Karolina Joanna Gaworska sér um ræstingar á skrifstofu félagsins á Akureyri.

Katla er ráðgjafi í starfsendurhæfingu og starfar fyrir öll félögin á Eyjafjarðarsvæðinu.

Nicole er ráðgjafi í starfsendurhæfingu og starfar fyrir öll félögin á Eyjafjarðarsvæðinu.

Nicole er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju á Dalvík einu sinni í viku.

Rósfríð annast bókhald og sér einnig um innheimtu iðgjalda.

Rut er mannauðs- og fræðslustjóri hjá félaginu. Hún sinnir almennri fræðslu fyrir hönd félagsins, þar á meðal í skólum, vinnustöðum og fræðslumiðstöðvum.

Tryggvi er varaformaður félagsins. Hann er jafnframt starfsmaður Matvæla- og þjónustudeildar. Hann gegnir einnig ýmsum trúnaðarstörfum fyrir félagið.

Valgerður starfar sem afgreiðslufulltrúi á skrifstofu félagsins á Akureyri.

Vilhelm er afgreiðslufulltrúi félagsins á Akureyri.

Þórey er þjónustufulltrúi á skrifstofu Einingar-Iðju í Fjallabyggð. Vinnutími hennar er mánudaga og fimmtudaga milli kl. 9:00 og 16:00 og föstudaga milli kl. 9:00 og 14:00.