Aðalfundur félagsins 2021

Aðalfundur félagsins verður rafrænn í ár.
Fundurinn verður miðvikudaginn 28. apríl og mun hefjast kl. 19:30.

Fundurinn mun fara fram á Microsoft Teams og þurfa þeir sem ætla að mæta á fundinn að skrá sig á hann hér fyrir neðan til að hægt verði að senda viðkomandi félagsmanni hlekk á fundinn. Lokað verður fyrir skráningar kl. 17:00 daginn sem fundurinn fer fram.

Athygli er vakin á því að aðeins félagsmenn hafa setu- og atkvæðisrétt á fundinum.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta!

Dagskrá:

  1. Venjuleg aðalfundarstörf.
  2. Kosning 42 fulltrúa á ársfund Stapa lífeyrissjóðs.
  3. Önnur mál.