Aðalfundur Einingar-Iðju 2024

Þriðjudaginn 16. apríl 2024 fer fram aðalfundur Einingar-Iðju. Fundurinn hefst kl. 18:30 og verður á Hótel KEA / Múlabergi á Akureyri. Félagsfólk, fjölmennum á fundinn!  ATHUGIÐ! fundurinn mun hefjast einni klst. fyrr en síðustu ár.

Veitingar í boði

Dagskrá

  1. Venjuleg aðalfundarstörf
  2. Lagabreytingar
  3. Kosning fulltrúa á ársfund Stapa lífeyrissjóðs
  4. Önnur mál.

Boðið verður upp á akstur til Akureyrar

Skráning í rútu frá Fjallabyggð fer fram í síma 460 3600. Skráningu lýkur kl. 13 sama dag og fundurinn fer fram.

  • Siglufjörður, rúta kl. 17:00, frá skrifstofu félagsins.
  • Ólafsfjörður, rúta kl. 17:15, frá Tjarnarborg.
  • Dalvík, rúta kl. 17:30, frá skrifstofu félagsins.

Grenivík og Hrísey

  • Heyrið í svæðisfulltrúa eða varasvæðisfulltrúa