Vegna sumarleyfa verður lokað á skrifstofu félagsins á Dalvík á föstudögum í sumar, frá 13. júní og til 12. september. Það verður einnig lokað dagana 28. júlí til og með 11. ágúst.
Við minnum félagsmenn á að sækja rafrænt um styrki, bæði úr fræðslusjóði og sjúkrasjóði, og sjúkradagpeninga inn á Mínum síðum Einingar-Iðju, þar inni er einnig pantað eða sótt um og greitt fyrir orlofshús og íbúðir.
Á Mínum síðum Einingar-Iðju má finna hnapp til að senda inn fyrirspurn eða stofna mál.
Einnig er hægt að senda póst og fyrirspurnir á ein@ein.is