Sjúkrasjóður og fræðslusjóðir - skilafrestur umsókna

Reglur um skil á gögnum til sjúkrasjóðs Einingar-Iðju og vegna fræðslusjóða félagsins

Vinsamlegast athugið!

Fundur er haldinn í stjórn sjúkrasjóðs Einingar-Iðju einu sinni í mánuði. Umsókn og gögn sem leggja á fyrir fund þurfa að hafa borist til skrifstofunnar í síðasta lagi 24. hvers mánaðar. ATH! breytilegt er milli ára hvenær skila þarf gögnum í febrúar og desember og jafnvel í öðrum mánuðum líka.

Umsóknir um allar greiðslur úr sjúkrasjóði eru lagðar fyrir fund þ.m.t. dagpeningar, endurgreiðslur vegna sjúkraþjálfunar, sjúkranudds, krabbameinsleitar og allra styrkja sem greiddir eru skv. reglugerð sjóðsins.

Það sama gildir vegna skila á umsókn og gögnum til fræðslusjóða félagsins. Ekki er hægt að ábyrgjast greiðslu um næstu mánaðamót ef þau koma eftir 24. hvers mánaðar.

ATHUGIÐ! Við hvetjum félagsmenn til að sækja rafrænt um styrki inn á Mínum síðum Einingar-Iðju

Hér má sjá reglur um skil á læknisvottorði