Sjúkrasjóður og fræðslusjóðir - skilafrestur umsókna

Reglur um skil á umsókn og gögnum til sjúkrasjóðs Einingar-Iðju og vegna fræðslusjóða félagsins

ATHUGIÐ!  Í desember þarf að skila inn umsókn og gögnum fyrr en venjulega

Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna desembermánaðar fer fram í síðasta lagi 30. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári.

Skila þarf inn umsókn og gögnum til félagsins í síðasta lagi 18. desember 2024 til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í lok janúar 2025. 

Athugið að reikningar og kvittanir eru skráð á það ár sem gögn berast. Dæmi: Þú ferð til sjúkraþjálfara í desember en kemur með kvittun í janúar, þá skráist þetta í janúar, s.s. árið eftir að þú ferð í tíma og fer af rétti þess árs. 

Fundur er haldinn í stjórn sjúkrasjóðs Einingar-Iðju einu sinni í mánuði. Umsókn og gögn sem leggja á fyrir fund þurfa að hafa borist til félagsins í síðasta lagi 24. hvers mánaðar. ATH! breytilegt er milli ára hvenær skila þarf gögnum í febrúar og desember.

Umsóknir um allar greiðslur úr sjúkrasjóði eru lagðar fyrir fund þ.m.t. dagpeningar, endurgreiðslur vegna sjúkraþjálfunar, sjúkranudds, krabbameinsleitar og allra styrkja sem greiddir eru skv. reglugerð sjóðsins.

Það sama gildir vegna skila á umsókn og gögnum til fræðslusjóða félagsins. Ekki er hægt að ábyrgjast greiðslu um næstu mánaðamót ef þau koma eftir 24. hvers mánaðar.

ATHUGIÐ! Við hvetjum félagsmenn til að sækja rafrænt um styrki inn á Mínum síðum Einingar-Iðju

Hér má sjá reglur um skil á læknisvottorði