Aldarfjórðungur er liðinn frá stofnun Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar – SÍMEY. Af því tilefni var efnt til samsætis í húsakynnum SÍMEY sl. fimmtudag og má sjá nokkrar myndir frá því hér þar sem ávörp voru flutt og gestir nutu afmæliskræsinga. Afmælisdagskráin var í beinu framhald af ársfundi SÍMEY þar sem farið var yfir starfsemi miðstöðvarinnar á árinu 2024.
Vel var mætt til vinafundar í afmælishófinu. Í opnunarávarpi Valgeirs Magnússonar, framkvæmdastjóra SÍMEY, kom m.a. fram að þegar SÍMEY var stofnuð fyrir 25 árum hafi markmiðin verið skýr: að efla þekkingu fólks á Eyjafjarðarsvæðinu, styrkja atvinnulífið og veita einstaklingum tækifæri til að vaxa, bæði í starfi og á persónulegu sviði. Óhætt sé að segja að samkvæmt sömu markmiðum sé enn unnið en útfærsla verkefnanna hafi breyst í takti við samfélagsbreytingar. Valgeir sagði að SÍMEY hafi átt í farsælu samstarfi við fyrirtæki, stofnanir, stéttarfélög, starfsmenntasjóði og skólakerfið og fyrir það beri að þakka. Og ekki síður beri að þakka starfsfólki SÍMEY – fyrr og nú – fyrir elju og fagmensku og einnig öllum þeim kennurum sem hafi lagt hönd á plóg. Að ógleymdum öllum sem hafi nýtt sér þjónustu SÍMEY.
„Við lítum um öxl með stolti – en einnig fram á veginn með spennu. Þörfin fyrir símenntun hefur aldrei verið meiri – og við erum tilbúin að halda áfram að þróast, svara nýjum áskorunum og opna nýjar dyr fyrir enn fleiri. Þörfin fyrir þessa starfsemi framhaldsfræðslunnar hefur aldrei verið meiri. Þörfin fyrir kerfi sem hefur bæði sveigjanleika og aðlögunarhæfni til að mæta mjög breytilegum og fjölþættum þörfum samfélags er mjög mikil og fer vaxandi.
Fyrir mig persónulega hefur það verið mikill heiður að fá að fylgjast að gegnum okkar kerfi og umhverfi öll þessi ár. Ég hóf störf hér um mitt ár 2006 sem náms- og starfsráðgjafi SÍMEY en þá var Fræðslumiðstöð atvinnulífsins að koma til sögunar og allt umhverfi og verkefni að taka miklum breytingum. Fyrstu tvö árin fólst starf mitt í að heimsækja vinnustaði, halda kynningar og taka ráðgjafarviðtöl við fólk í sínu starfsumhverfi. Þetta var ótrúlega gefandi, fólk var áhugasamt og þakklátt og maður fann sannarlega þörf og áhuga. Ég sakna þess stundum í stjórnunarstarfinu, því þessi samskipti við þátttakendur eru nánast alltaf jákvæð og ótrúlega gefandi. Það hefur verið ótrúlegur heiður að starfa í starfsumhverfi sem er svona mannbætandi og virðisaukandi á allan hátt. Ég vona sannarlega og trúi að framtíðin sé björt og okkur takist að halda vel utan um þetta kerfi í heild sinni og starfsumhverfi, því ég efa ekki að það sé mikilvægt og gríðarlega jákvætt fyrir samfélagið allt,“ sagði Valgeir m.a. í opnunarávarpi sínu í 25 ára afmælishófinu í dag.
Ávörp fluttu einnig Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður stjórnar SÍMEY, sem fór yfir eitt og annað úr sögu SÍMEY og dró fram áhugaverðar tölulegar staðreyndir og Hulda Anna Arnljótsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu stefnumótunar og innleiðingar í mennta- og barnamálaráðuneytinu, sem flutti ávarp Guðmundar Inga Kristjánssonar, mennta- og barnamálaráðherra, þar sem ráðherra átti þess ekki kost að mæta í afmælishófið.
Tveir fyrrverandi nemendur í SÍMEY, Svetlana Beliaeva og Ingþór Örn Valdimarsson, sögðu frá reynslu sinni af námi í SÍMEY og hvernig það hafi leitt til afar jákvæðra breytinga. Svetlana fór í íslenskunám og kennir nú sjálf íslensku í SÍMEY fyrir rússneskumælandi fólk. Ingþór Örn hafði ekki lokið formlegu námi þegar hann fór í félagsliðanám í SÍMEY. Að náminu í SÍMEY loknu hélt hann áfram í VMA og mun nk. laugardag útskrifast frá VMA sem félagsliði og stúdent. Í framhaldinu hyggst hann stunda þroskaþjálfanám í fjarnámi við Háskóla Íslands.
Magnús Smári Smárason, verkefnisstjóri gervigreindar hjá Háskólanum á Akureyri, flutti eftirtektarvert ávarp um gervigreindina, hvað hún er og við hverju megi búast í framtíðinni á þessu sviði. Hvatti Magnús Smári alla til þess að nýta sér þessa tækni og þreifa sig áfram með hana. Taldi hann að handan við hornið væri næsta skref í þessari tækni, þróunin væri hröð.
Um tónlistarflutning í afmælishófinu sáu Guðrún Arngrímsdóttir og Anna Skagfjörð. Veislustjóri var Bragi V. Bergmann, sem hefur lengi tengst SÍMEY, m.a. sem kennari íslensku, fyrir fólk af erlendum uppruna.
Stofnaðilar SÍMEY eru Háskólinn á Akureyri, framhaldsskólarnir á Akureyri, listaskólarnir á Akureyri, sveitarfélög í Eyjafirði, stéttarfélög í Eyjafirði, félög atvinnurekenda og ýmiss fyrirtæki og stofnanir á svæðinu.