Aðalfundir deilda félagsins 2026

Sóley Björk Stefánsdóttir, verkefnastjóri í Eyjafjarðardeild Rauða krossins á Íslandi, flutti fróðle…
Sóley Björk Stefánsdóttir, verkefnastjóri í Eyjafjarðardeild Rauða krossins á Íslandi, flutti fróðlegt erindi í upphafi fundar þar sem hún sagði aðeins frá Rauða krossinum og helstu verkefnum Eyjafjarðardeildarinnar.

Aðalfundir starfsgreinadeilda Einingar-Iðju fóru fram fimmtudaginn 5. febrúar sl. á Hótel KEA/Múlabergi á Akureyri. Ágæt mæting var á fundina sem tókust mjög vel. Í upphafi var sameiginleg dagskrá þar sem Sóley Björk Stefánsdóttir, verkefnastjóri í Eyjafjarðardeild Rauða krossins á Íslandi, fjallaði aðeins um Rauða krossinn og helstu verkefni Eyjafjarðardeildarinnar.

Að loknu mjög góðu erindi Sóleyjar var boðið upp á veitingar, því næst héldu deildirnar þrjár; Opinbera deildin, Matvæla- og þjónustudeildin og Iðnaðar- og tækjadeildin, sinn aðalfund hver í sínum sal þar sem fram fóru venjuleg aðalfundarstörf. Í ár var kosið í öllum deildum til tveggja ára um embætti varaformanns og þriggja meðstjórnanda. Einnig var kosið í Opinberu deildinni um formann deildarinnar og einn meðstjórnanda til eins árs og um einn meðstjórnanda til eins árs í Matvæla- og þjónustudeildinni.

Þó nokkuð margar breytingar urðu á stjórnum deildanna. Í Opinberudeildinni er kominn nýr formaður sem og varaformaður og í Iðnaðar- og tækjadeildinni er kominn nýr varaformaður. Formann og varaformenn deilda sitja í aðalstjórn félagsins og því urðu jafnframt breytingar á henni frá sama tíma. Nánar má lesa um hvern fund fyrir sig hér á eftir.

Matvæla og þjónustudeild
Í byrjun fundar flutti Baldvin Hreinn Eiðsson, formaður deildarinnar, skýrslu stjórnar, og að því loknu var gengið til kosninga um stjórnarmenn deildarinnar. Á fundinum var kosið um fimm af níu stjórnarmönnum deildarinnar. Kosið var um varaformann og þrjá meðstjórnendur til tveggja ára en einnig þurfti að kjósa einn meðstjórnanda til eins árs.

Eftirfarandi gáfu kost á sér til tveggja ára:

  • Varaformaður - Bethsaida Rún Arnarson - ÚA
  • Meðstjórnandi - Elsa Hrönn Grey Auðunsdóttir - Akureyri
  • Meðstjórnandi - Hlynur Aðalsteinsson - Öryggismiðstöðin
  • Meðstjórnandi - Friðrik Tryggvi Friðriksson - Coca-cola

Eftirfarandi gaf kost á sér til eins árs:

  • Meðstjórnandi - Hrafnhildur B. Baldursdóttir - Vitinn Mathús

Meðstjórnandi til nokkurra ára, Hrafnhildur Ása Einarsdóttir, hafði óskað eftir að losna úr öllum trúnaðarstörfum fyrir félagið. Sveinbjörn G. Kröyer Guðmundsson sem verið hefur meðstjórnandi undanfarin ár er kominn í annað félag og bauð sig því ekki fram á ný. Beth, Elsa Hrönn og Hlynur , sitjandi stjórnarmenn, gáfu kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Friðrik og Hrafnhildur voru að gefa kost á sér í fyrsta sinn. Engin mótframboð bárust og því var listinn sjálfkjörinn.

Fyrir í stjórn voru Baldvin Hreinn Eiðson formaður,  Unnur Hrafnsdóttir ritari og meðstjórnendurnir Reynir Magnús Víglundsson og Steinþór Berg Lúthersson.

Iðnaðar- og tækjadeild
Í byrjun fundar flutti Ingvar Kristjánsson, formaður deildarinnar,  skýrslu stjórnar, og að því loknu var gengið til kosninga um stjórnarmenn deildarinnar. Á fundinum var kosið um fjóra af níu stjórnarmönnum deildarinnar. Kosið var um varaformann og þrjá meðstjórnendur til tveggja ára.

Eftirfarandi gáfu kost á sér:

  • Varaformaður - Baldur Helgi Árnason - Slippurinn Akureyri
  • Meðstjórnandi - Gísli Einarsson - SBA
  • Meðstjórnandi - Helga Margrét Freysdóttir - Pharmarctica
  • Meðstjórnandi - Jens Kristófer Buch Jensson - Samskip

Svavar Magnússon, fyrrum varaformaður, og meðstjórnandinn Þormóður Sigurðsson höfðu ákveðið að hætta í stjórninni. Baldur Helgi hefur verið meðstjórnandi en bauð sig nú fram í embætti varaformanns. Gísli bauð sig fram á ný sem meðstjórnandi en Jens Kristófer og Helga Margrét voru að bjóða sog fram í fyrsta sinn. Engin mótframboð bárust og var listinn því sjálfkjörinn.

Fyrir í stjórn voru Ingvar Kristjánsson formaður, Gunnar Magnússon ritari og meðstjórnendurnir Agnar Ingi Svansson, Ingólfur Ásmundsson og Stefán Gíslason.

Opinbera deildin
Að lokinni skýrslu stjórnar sem Guðbjörg Helga Andrésdóttir, formaður deildarinnar, flutti var gengið til kosninga. Í ár var kosið um sex af níu stjórnarmönnum deildarinnar. Kosið var til tveggja ára um varaformann og þrjá meðstjórnendur. Einnig þurfti að kjósa um formann til eins árs sem og einn meðstjórnanda til eins árs.

Eftirfarandi gáfu kost á sér til tveggja ára:

  • Varaformaður - Auður Íris Eiríksdóttir - Heilsuvernd hjúkrunarheimili
  • Meðstjórnandi - Elísabet Inga Ásgrímsdóttir - Þjónustukjarninn Geislatúni
  • Meðstjórnandi - Sara Hrönn Sævarsdóttir - SAk
  • Meðstjórnandi - Sunna Vilborg Jónsdóttir - Þjónustukjarninn Geislatúni

Eftirfarandi gáfu kost á sér til eins árs:

  • Formaður - Ingibjörg María Ingvadóttir - Dalvíkurskóli
  • Meðstjórnandi - Sigríður Hannesdóttir - Hólmasól

Eins og fram kom í ræðu Guðbjargar þá er hún farin að greiða í KÍ þar sem hún hefur hafið störf sem leikskólakennari sem aðalstarf og ákvað hún því að hætta sem formaður deildarinnar. Ingibjörg María, sem setið hefur sem varaformaður deildarinnar, ákvað að gefa kost á sér í embættið. Auður Íris Eiríksdóttir sem verið hefur meðstjórnandi bauð sig fram í embætti varaformanns og þar sem hún var kjörin þurfti að kjósa einn meðstjórnanda til eins árs og bauð Sigríður Hannesdóttir sig fram í embættið og kom hún ný inn í stjórnina. Fráverandi meðstjórnendur, Signý og Skúli, ákváðu að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu og buðu Elísabet Inga Ásgrímsdóttir, Sara Hrönn Sævarsdóttir og Sunna Vilborg Jónsdóttir sig fram í embættin. Elísabet sat áður í stjórninni en Sara Hrönn og Sunna Vilborg komu nýjar inn í stjórnina. Engin mótframboð bárust og var listinn því sjálfkjörinn.

Fyrir í stjórn voru ritarinn Guðrún Valdís Eyvindsdóttir og meðstjórnendurnir Ólöf María Olgeirsdóttir og Valdimar Friðjón Jónsson.