Aðalfundir deilda félagsins fóru fram í gær

Ágæt mæting var á fundina sem tókust mjög vel. Í upphafi var sameiginleg dagskrá þar sem Ingunn Helg…
Ágæt mæting var á fundina sem tókust mjög vel. Í upphafi var sameiginleg dagskrá þar sem Ingunn Helga Bjarnadóttir, verkefnastjóri og ráðgjafi hjá SÍMEY, var með fyrirlestur um markmiðasetningu.

Aðalfundir starfsgreinadeilda Einingar-Iðju fóru fram í gær, miðvikudaginn 8. febrúar, á Hótel KEA á Akureyri. Ágæt mæting var á fundina sem tókust mjög vel. Í upphafi var sameiginleg dagskrá þar sem Ingunn Helga Bjarnadóttir, verkefnastjóri og ráðgjafi hjá SÍMEY, var með fyrirlestur um markmiðasetningu. 

Að loknu mjög góðu erindi Ingunnar Helgu var boðið upp á veitingar, súpu og brauð, og er fundarmenn höfðu gert sér þær að góðu héldu deildirnar þrjár; Opinbera deildin, Matvæla- og þjónustudeildin og Iðnaðar- og tækjadeildin, sinn aðalfund hver í sínum sal þar sem fram fóru venjuleg aðalfundarstörf. Í ár var kosið í öllum deildum til tveggja ára um embætti varaformanns og þriggja meðstjórnanda. Einnig var kosið um formann og einn meðstjórnanda til eins árs í Matvæla- og þjónustudeildinni.

Matvæla og þjónustudeild
Í byrjun fundar flutti Bethsaida Rún Arnarson, starfandi formaður deildarinnar, skýrslu stjórnar, og að því loknu var gengið til kosninga um stjórnarmenn deildarinnar. Á fundinum var kosið um sex af níu stjórnarmönnum deildarinnar. Kosið var um varaformann og þrjá meðstjórnendur til tveggja ára. Einnig þurfti að kjósa um formanna og einn meðstjórnana til eins árs, en á fyrsta fundi stjórnar á síðasta starfsári urðu breytingar í stjórn deildarinnar því Tryggvi þáverandi formaður var orðinn starfandi varaformaður félagsins. Lagt var til og samþykkt að Beth varaformaður tæki við stjórn deildarinnar og yrði starfandi formaður út starfsárið. Deildin á tvö sæti í aðalstjórn og þar sem Tryggvi sat þar sem starfandi varaformaður félagsins vantaði einn stjórnarmann úr deildinni inn í aðalstjórn félagsins út starfsárið. Lagt var til og samþykkt að það yrði meðstjórnandinn Baldvin Hreinn Eiðsson frá Kjarnafæði-Norðlenska og var hann því starfandi varaformaður deildarinnar á síðasta starfsári.

Baldvin, sem var  gaf kost á sér sem formaður til eins árs og þar sem hann var kjörinn bauð Unnur Hrafnsdóttir sig fram sem nýr meðstjórnandi til eins árs. Bethsaida gaf áfram kost á sér sem varaformaður. Hvað meðstjórnendur varðar þá gáfu Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir og Sveinbjörn G Kröyer Guðmundssin kost á sér áfram. Sem nýr meðstjórnandi gaf kost á sér Hlynur Aðalsteinsson sem starfar hjæa Öryggismiðstöðinni. Engin mótframboð bárust og því var listinn sjálfkjörinn.

Fyrir í stjórn var Sigríður Þ. Jósepsdóttir ritari og meðstjórnendurnir Júlía Björk Kristmundsdóttir og Steinþór Berg Lúthersson.

Iðnaðar- og tækjadeild
Í byrjun fundar flutti Ingvar Kristjánsson, formaður deildarinnar,  skýrslu stjórnar, og að því loknu var gengið til kosninga um stjórnarmenn deildarinnar. Á fundinum var kosið um fjóra af níu stjórnarmönnum deildarinnar. Kosið var um varaformann og þrjá meðstjórnendur til tveggja ára. 

Svavar Magnússon varaformaður bauð sig aftur fram og meðstjórnendurnir Gísli Einarsson, Þormóður Sigurðsson og Þór Jóhannesson buðu sig einnig allir fram á ný. Engin mótframboð bárust og var listinn því sjálfkjörinn.

Fyrir í stjórn voru Ingvar Kristjánsson formaður, Gunnar Magnússon ritari og meðstjórnendurnir Agnar Ingi Svansson, Ingólfur Ásmundsson og Stefán Gíslason.

Opinbera deildin

Að lokinni skýrslu stjórnar sem Guðbjörg Helga Andrésdóttir, formaður deildarinnar, flutti var gengið til kosninga. Í ár var kosið um fjóra af níu stjórnarmönnum deildarinnar. Kosið var til tveggja ára um varaformann og þrjá meðstjórnendur. 

Ingibjörg María Ingvadóttir gaf áfram kost á sér í embætti varaformanns og Signý Aðalsteinsdóttir, Skúli Már Þórmundsson og Elísabet Inga Ásgrímsdóttir gáfu kost á sér áfram sem meðstjórnendur. Engin mótframboð bárust og var listinn því sjálfkjörinn.

Fyrir í stjórn voru Guðbörg Helga formaður, Guðrún Valdís Eyvindsdóttir ritari og meðstjórnendurnir Auður Íris Eiríksdóttir, Valdimar Friðjón Jónsson og Ólöf María Olgeirsdóttir.