Baldvin kjörinn nýr formaður Matvæla- og Þjónustudeildar

F.v.: Baldvin nýr formaður Matvæla- og þjónustudeildar, Unnur nýr meðstjórnandi og Beth sem var endu…
F.v.: Baldvin nýr formaður Matvæla- og þjónustudeildar, Unnur nýr meðstjórnandi og Beth sem var endurkjörin sem varaformaður deildarinnar.

Á Aðalfundum deilda sem fram fóru í síðustu viku fóru fram kosningar um nokkur embætti. Í reglugerð fyrir Starfsgreinadeildar félagsins segir m.a. að stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára sem hér segir: Annað árið formann, ritara og þrjá (3) meðstjórnendur en hitt árið varaformann og þrjá (3) meðstjórnendur. 

Í ár var komið að því að kjósa í öllum deildum til tveggja ára um embætti varaformanns og þriggja meðstjórnanda. Einnig var kosið um formann og einn meðstjórnanda til eins árs í Matvæla- og þjónustudeildinni.

Baldvin Hreinn Eiðsson frá Kjarnafæði-Norðlenska var kjörinn nýr formaður Matvæla- og þjónustudeildar en hann var starfandi varaformaður deildarinnar á síðasta starfsári.

Nánar má lesa um niðurstöðu kosninganna í hverri deild fyrir sig hér.