Vert er að benda félagsmönnum á að ekki þarf að sækja um orlofsíbúð sem Eining-Iðja er með á Spáni.
Það er opið fyrir bókanir í hana sex mánuði fram í tímann og því gildir fyrstur pantar, fyrstur fær.
Hægt er að leigja eina eða tvær samfelldar vikur. (ATH! hafa þarf samband við félagið ef leigja skal 2 vikur) Skiptidagar eru á þriðjudögum. Gistipláss er fyrir fjóra í íbúðinni.
Íbúð í lokuðum íbúðakjarna í Play Flamenca
Íbúðin er á góðum stað í Playa Flamenca á Spáni, í lokuðum íbúðakjarna og samanstendur af tveimur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu. Um er að ræða rólegt og vinsælt íbúðarhverfi við Costa Blanca-ströndinni á Spáni.