Með Mínar síður í vasanum

How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?

Eins og sagt var frá í gær þá er búið að taka í notkun nýtt viðmót á Mínum síðum félagsins. Um leið var innleitt nýtt umsóknarferli fyrir mennta- og sjúkrastyrki og ný vefverslun opnuð.

Ein mikilvægasta nýjungin er stórbætt símaviðmót. Sífellt fleiri nýta stafræna þjónustu í gegnum farsíma en kerfið sem áður var í notkun var ekki nægilega vel aðlagað minni skjám.

Við hönnun nýja viðmótsins var því lögð sérstök áhersla á að þjónustan sé einföld og aðgengileg óháð skjástærð. Skýrari valmyndir, stærri aðgerðafletir og einfaldari framsetning upplýsinga eiga að auðvelda félagsmönnum að sinna sínum erindum í símanum.

Þannig er nú hægt að sækja um styrki, skoða orlofskosti og nýta aðra þjónustu félagsins á þægilegri hátt, hvort sem félagsmaðurinn er heima við tölvuna eða á ferðinni með símann.

Hér má finna leiðbeiningar fyrir helstu aðgerðir inni á Mínum síðum félagsins. ATH! Verið er að uppfæra þær miðað við nýja viðmótið