Ný skýrsla Vörðu sýnir að breið gjá einkennir stöðu launafólks í landinu

Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins leggur árlega fyrir könnun meðal launafólks í aðildarfélög…
Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins leggur árlega fyrir könnun meðal launafólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB. Markmið hennar er að varpa ljósi á lífsskilyrði þeirra.

Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins, ASÍ og BSRB kynnti fyrr í morgun niðurstöður úr spurningakönnun Vörðu um stöðu launafólks á Íslandi. Markmið könnunarinnar er að meta fjárhagsstöðu, stöðu á húsnæðismarkaði, líkamlega og andlega heilsu og stöðu innflytjenda á íslenskum vinnumarkaði meðal launafólks innan aðildarfélaga ASÍ og BSRB.

Sjö af hverjum tíu ná endum saman og sex af hverjum tíu gætu mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum án þess að stofna til skuldar. Hinn hluti launafólks býr hins vegar við allt önnur kjör og er afkoma lágtekjufólks almennt mjög erfið og umtalsverður fjöldi á vinnumarkaði býr við raunverulegan skort.

Meirihluti launafólks á eignir og býr í eigin húsnæði en nokkuð stór hópur er skuldsettur
Ríflega sex af hverjum tíu búa í eigin húsnæði auk þess sem rúmlega helmingur á sparnað sem nemur að minnsta kosti einum mánaðarlaunum.

Umtalsverður hluti launafólks er með skammtímaskuldir en ríflega fjórðungur er með yfirdrátt og bílalán. Meira en einn af hverjum tíu er með smálán eða skammtímalán og lán hjá vini eða fjölskyldumeðlim.

Innflytjendur standa höllum fæti
Atvinnuþátttaka innflytjenda er meiri en innfæddra og hærra hlutfall þeirra er með háskólamenntun samanborið við innfædda. Þrátt fyrir það eru atvinnutekjur þeirra lægri og fjárhagsstaða verri.

Fólk á tekjulágum heimilum býr í mun meira mæli við slæma andlega líðan
Mikill munur er á andlegri líðan eftir heimilistekjum. Fjórir af hverjum tíu á heimilum með 499 þúsund eða lægri heimilistekjur búa við slæma andlega heilsu og hlutfallið er ögn lægra á heimilum þar sem tekjur eru á bilinu 500-749 þúsund. Til samanburðar mælast 13% þeirra sem eru á heimilum með tvær milljónir eða meira í tekjur með slæma andlega heilsu. 

Hærra hlutfall fólks með lágar heimilistekjur býr við slæma líkamlega heilsu
Nákvæmlega sama mynstur sést þegar litið er til líkamlegrar heilsu. Tæplega fjórðungur þeirra sem eru með heimilistekjur undir 499 þúsund krónum meta líkamlega heilsu mjög eða frekar slæma samanborið við 10% þeirra sem eru með tvær milljónir eða hærri heimilistekjur. 

Í skýrslunni er að finna ítarlega greiningu á niðurstöðum rannsóknarinnar.

Rannsóknin náði til félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og BSRB – heildarsamtaka stéttafélaga starfsmanna í almannaþjónustu. Þetta er fimmta árið í röð sem könnun á lífsskilyrðum launafólks er gerð og hefur fjöldi svara aldrei verið meiri en nú þar sem tæplega 25.000 svör bárust. 

Skýrsluna má lesa í heild sinni hér

Kynningin var í beinu streymi og má sjá upptöku af kynningunni hér fyrir neðan