Orlof að eigin vali - rafræn skil á gögnum

Félagið vill vekja athygli á að félagsmenn sem fengu úthlutað fyrr á árinu Orlofi að eigin vali og eru t.d búin að fara í ferð geta nú þegar skilað inn rafrænum gögnum til félagsins.

Það þarf að skila inn reikningi eða farseðli í gegnum Mínar síður í síðasta lagi fyrir kl. 12:00 á hádegi 29. desember til að fá endurgreitt.

ATH! Framvísa þarf löglega númeruðum vsk. reikningum eða farseðlum!

LEIÐBEININGAR UM RAFRÆN SKIL GAGNA FYRIR ÁRIÐ 2026

Hér fyrir neðan eru smá leiðbeiningar um hvernig félagsmenn sem fengu úthlutað "Orlofi að eigin vali 2026" eiga sjálfir að skila inn gögnum með því að setja inn skjöl/gögn inn á Mínar síður vegna styrksins.

Einfaldast er að skruna niður persónublaðið og smella á „Styrkumsóknir“, þar sem umsóknin er aðgengileg.  Þegar komið er inn í umsóknina er smellt á bláa takkann Opna og þá er hægt að senda inn gögn.

Sjá nánar