Rafræn atkvæðagreiðsla hefst kl. 13 í dag

Rafræn atkvæðagreiðsla hjá aðildarfélögum SGS um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands við Samtök atvinnulífsins fyrir störf á almennum vinnumarkaði, sem undirritaður var 3. apríl 2019, hefst kl. 13:00 í dag, þann 12. apríl, og lýkur þriðjudaginn 23. apríl kl. 16:00.

Atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn í aðildarfélögum SGS sem vinna eftir viðkomandi samningi og greiddu félagsgjöld til einhvers aðildarfélaga SGS í janúar/febrúar 2019. Kynningarefni hefur verið sent út í pósti samkvæmt kjörskrá. Frekara kynningarefni um samninginn má nálgast hér.

Fái einhver, sem telur sig eiga atkvæðisrétt, kynningarefnið ekki sent getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu síns stéttarfélags og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem sanni afdregin félagsgjöld í janúar/febrúar 2019. Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 16.00 þriðjudaginn 23. apríl en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn. Félagsmenn eru eindregið hvattir til að nýta réttindi sín og greiða atkvæði.

Lengri opnunartími á skrifstofum félagsins

  • Akureyri – 15. og 16. apríl til kl. 20:00
  • Dalvík – 16. apríl til kl. 19:00
  • Fjallabyggð – 16. apríl til kl. 19:00

Viðvera í Hrísey og á Grenivík

  • Hrísey, á veitingastaðnum Verbúðin - 16. apríl milli kl. 16:00 og 18:30
  • Grenivík, á veitingastaðnum Kontorinn - 16. apríl milli kl. 16:00 og 18:30

Hvernig á að greiða atkvæði?
Til að greiða atkvæði með rafrænum hætti smellir viðkomandi á hnappinn hér að neðan og skráir sig inn með rafrænum skilríkjum eða íslykli*. Eftir innskráningu birtist atkvæðaseðilinn og getur viðkomandi þá greitt atkvæði.** Athugið að kosningin verður ekki virk fyrr en kl. 13:00 í dag, föstudaginn 12. apríl.

Eining-Iðja