SÍÐASTI DAGUR Í DAG TIL AÐ KJÓSA!

Nú stendur yfir rafræn atkvæðagreiðsla á www.ein.is um nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins fyrir störf á almennum vinnumarkaði, sem undirritaður var 3. apríl 2019. Henni lýkur Í DAG kl. 16:00.

Atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn í aðildarfélögum SGS sem vinna eftir viðkomandi samningi og greiddu félagsgjöld til einhvers aðildarfélaga SGS í janúar/febrúar 2019. Athugið að ekki er enn búið að semja fyrir þá félagsmenn sem starfa hjá ríki og sveitarfélögunum.

Kynningarefni hefur verið sent út í pósti samkvæmt kjörskrá. Frekara kynningarefni um samninginn má nálgast hér.

Fái einhver, sem telur sig eiga atkvæðisrétt, kynningarefnið ekki sent getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu síns stéttarfélags og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem sanni afdregin félagsgjöld í janúar/febrúar 2019. Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 16.00 þriðjudaginn 23. apríl en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn. Félagsmenn eru eindregið hvattir til að nýta réttindi sín og greiða atkvæði.

Hvernig á að greiða atkvæði?
Til að greiða atkvæði með rafrænum hætti smellir viðkomandi á hnappinn hér að neðan og skráir sig inn með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Eftir innskráningu birtist atkvæðaseðilinn og getur viðkomandi þá greitt atkvæði.

Eining-Iðja