Samningur við SA - kynningarfundur í Fjallabyggð í kvöld

Frá fundinum á Dalvík í gær
Frá fundinum á Dalvík í gær

Í kvöld mun félagið halda í Fjallabyggð kynningarfund á nýjum kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins sem undirritaður var í síðustu viku. Í vikunni er búið að halda slíka fundi í Hrísey, á Dalvík, á Grenivík og á Akureyri. Góð mæting hefur verið á fundina og almenn ánægja hefur verið með samninginn. Þessir fundir eru fyrir þá sem starfa á almenna markaðinum, ekki er enn búið að semja fyrir þá sem starfa hjá ríki og sveitarfélögunum.

Hér má sjá kynningarefni um nýja samninginn

Dagskrá fundarins í kvöld:

  1. Kynning á nýjum kjarasamningi.
  2. Önnur mál.

Sýnum ábyrga afstöðu!

Mætum og kynnum okkur samninginn áður en við greiðum atkvæði.