Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandi Íslands, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, hefur undirritað samkomulag við Samtök atvinnulífsins um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga. Niðurstaðan tryggir áframhaldandi gildi samninganna og felur í sér mikilvægar aðgerðir til að verja kjör launafólks, styrkja réttindi þess og skapa skilyrði fyrir lækkun verðbólgu og vaxta.
Allar umsamin launahækkanir sem eftir eru á samningstímanum, þar á meðal hækkanir á næsta ári, munu skila sér að fullu til launafólks.
Með þessari ábyrgu niðurstöðu tókst Breiðfylkingunni að afstýra hörðum átökum á vinnumarkaði og ná fram mikilvægum fyrirheitum um réttarbætur og sameiginlega ábyrgð á verðbólguþróuninni.
„Að mínu mati hefði verið glórulaust að stefna atvinnulífinu í harðan átakaferil við þessar aðstæður, þegar tekist hefur að ná fram öllum þessum mikilvægu fyrirheitum og tryggja að allar umsamin launahækkanir skili sér til launafólks. Nú þarf að fylgja þessari niðurstöðu eftir í verki,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands.
Mikil fundahöld og mikilvæg aðkoma stjórnvalda
Samkomulagið náðist eftir umfangsmiklar viðræður og mikil fundahöld undanfarna daga. Vilhjálmur Birgisson og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, funduðu meðal annars tvívegis með forsætisráðherra þriðjudaginn 6. október, auk funda um liðna helgi, til að finna lausn.
Aðkoma stjórnvalda skiptir miklu, enda fela fyrirheit þeirra í sér fjölmargar aðgerðir sem snúa að réttindum launafólks, stuðningi við barnafjölskyldur, húsnæðisöryggi og aðhaldi í gjaldskrárhækkunum.
Samningstíminn styttist um einn mánuð
Hluti niðurstöðunnar er að gildistími kjarasamninganna styttist um einn mánuð. Áætlað kostnaðarlegt umfang þeirrar breytingar fyrir atvinnulífið er um fimm milljarðar króna.
Stytting samningstímans skerðir ekki þær launahækkanir sem samið hefur verið um. Þær munu allar skila sér að fullu til launafólks.
Sameiginleg ábyrgð á lækkun verðbólgu og vaxta
Meginmarkmiðið er að ná tökum á verðbólgunni og skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta. Til þess þarf ríkið, sveitarfélögin og fyrirtækin að axla ábyrgð með launafólki.
Í sameiginlegri yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, ASÍ, SA og Sambands íslenskra sveitarfélaga kemur meðal annars fram:
-
Ríkið mun ekki hækka krónutölugjöld sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs um meira en 2,5% árið 2027. Kílómetragjald er undanskilið vegna kerfisbreytingar á gjaldtöku ökutækja.
-
Gjaldskrár ríkisstofnana sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs munu ekki hækka umfram 2,5% árið 2027.
-
Ríkið mun beina tilmælum til fyrirtækja í sinni eigu um að halda hækkunum gjaldskráa opinberrar þjónustu sem hafa bein áhrif á vísitöluna innan 2,5%.
-
Samband íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarfélög til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% árið 2027, í samræmi við ályktun landsþings sambandsins.
-
Sveitarfélög munu hvetja fyrirtæki í sinni eigu til að leita allra leiða til að halda hækkunum gjaldskráa opinberrar þjónustu sem hafa bein áhrif á vísitöluna innan 2,5%.
-
Samtök atvinnulífsins hvetja aðildarfyrirtæki sín til að leita allra leiða til að halda aftur af verðhækkunum.
Við fögnum sérstaklega aðkomu sveitarfélaganna og jákvæðum viðbrögðum þeirra við ákalli Breiðfylkingarinnar. Gjaldskrár sveitarfélaga hafa bein áhrif á útgjöld heimilanna og því skiptir þátttaka þeirra gríðarlegu máli.
Mánaðarlegir fundir til að fylgjast með verðbólguþróun
Samningsaðilar eru sammála um mikilvægi þess að fylgjast náið með þróun verðbólgunnar og fylgja markmiðum samkomulagsins eftir.
Frá og með nóvember 2026 verða haldnir mánaðarlegir fundir formanna og framkvæmdastjóra samningsaðila. Fundirnir fara fram í vikunni eftir birtingu verðbólgumælingar fyrri mánaðar.
Þessi sameiginlegi vettvangur verður nýttur til að rýna í verðbólguþróunina, einkum þróun innlendra þátta, og fylgja eftir því að allir axli sína ábyrgð á að halda aftur af verðhækkunum.
Jafnframt munu aðilar ráðast í aðgerðir til að draga úr vægi sjálfvirkra verðbreytinga. Stjórnvöld hefja einnig undirbúning að heildarsöfnun launaupplýsinga árið 2026 og tryggja fjármögnun verkefnisins frá 2027. Með því verður til heildstæðari upplýsingagrunnur um íslenskan vinnumarkað.
Févítisákvæði gegn launaþjófnaði
Lagt verður fram frumvarp eigi síðar en á vorþingi 2027 um einstaklingsbundinn rétt til févítis vegna vangreiddra lágmarkskjara samkvæmt kjarasamningum.
Með lágmarkskjörum er átt við öll laun og starfskjör sem starfsmaður á rétt á samkvæmt þeim kjarasamningi sem um starf hans gildir, meðal annars með tilliti til starfsaldurs, starfsreynslu, vinnutíma og vinnufyrirkomulags.
Þetta er afar mikilvægur áfangi í baráttunni gegn launaþjófnaði og félagslegum undirboðum. Aðgerðin styrkir stöðu launafólks og stuðlar um leið að heilbrigðari samkeppni fyrirtækja.
Lágmarkskjör falli ekki niður vegna tómlætis
Lagt verður fram frumvarp eigi síðar en á vorþingi 2027 um að lágmarkskjör launafólks falli ekki niður vegna tómlætis. Launafólk verður að geta treyst því að réttur þess til umsaminna launa og starfskjara sé varinn og falli ekki niður vegna þess að það hafi ekki gert kröfu nægilega snemma.
Barnabætur og skerðingamörk hækka
Fjárhæðir og skerðingamörk barnabóta verða hækkuð með lagabreytingu á haustþingi 2026, í samræmi við yfirlýsingu stjórnvalda vegna kjarasamninganna frá 2024.
Þá verður lagt fram frumvarp eigi síðar en á haustþingi 2027 um að barnabætur þróist milli ára með sama hætti og þrepamörk tekjuskattskerfisins. Miðað er við að það fyrirkomulag taki gildi árið 2028.
Markmiðið er að stuðningur við barnafjölskyldur haldist stöðugur milli ára.
Aukið húsnæðisöryggi og vernd leigjenda
Stjórnvöld hafa boðað fjölþættar aðgerðir í húsnæðismálum:
-
Lagt verður fram frumvarp á haustþingi 2026 sem heimilar ríkissjóði tímabundið að fjármagna stofnframlög sveitarfélaga til almennra íbúða. Úrræðinu er ætlað að gilda út árið 2027 og styðja við hraðari uppbyggingu hagkvæms húsnæðis.
-
Forgangsregla verður framlengd út árið 2027 þannig að að minnsta kosti tveir þriðju hlutar stofnframlaga renni til íbúða fyrir tekju- og eignalága leigjendur á vinnumarkaði.
-
Við heildarendurskoðun almenna íbúðakerfisins verður sérstaklega horft til fjölgunar leiguíbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði.
-
Lagt verður fram frumvarp á haustþingi 2026 um að banna mánaðarlega vísitölutengingu húsaleigu og áskilja að minnst tólf mánuðir líði milli hækkana.
-
Lagt verður fram frumvarp eigi síðar en á vorþingi 2027 um húsaleigutryggingar, með það að markmiði að styrkja réttarvernd, skýra meðferð tryggingarfjár og auka fyrirsjáanleika um endurgreiðslu þess.
-
Stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins greina þróun húsnæðisstuðnings fyrir eigendur húsnæðis. Niðurstöður eiga að liggja fyrir vorið 2027 og vinnu við nýtt húsnæðislánakerfi verður hraðað.
Sérstakar vaxtabætur ef verðbólga fer yfir viðmið
Í aðgerðalista stjórnvalda er einnig mikilvægt öryggisnet fyrir skuldsett heimili.
Mælist ársverðbólga yfir 4% í lok október 2027 verða greiddar einskiptisvaxtabætur til skuldsettra heimila í upphafi árs 2028, samtals tveir milljarðar króna. Mælist ársverðbólgan yfir 5% á sama tíma verður fjárhæðin þrír milljarðar króna.
Frekari réttarbætur og aðgerðir á vinnumarkaði
Meðal annarra aðgerða sem stjórnvöld hafa boðað eru:
-
Undirbúningur frumvarps um keðjuábyrgð í stærri verklegum framkvæmdum. Starfshópur með fulltrúum ASÍ og SA skilar drögum eigi síðar en 1. mars 2027 og stefnt er að framlagningu frumvarps haustið 2027.
-
Endurskoðun laga um Ábyrgðarsjóð launa í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins.
-
Viðbragðsáætlun gegn vaxandi atvinnuleysi fyrir lok árs 2026, með áherslu á aukinn stuðning og virkar vinnumarkaðsaðgerðir til að draga úr langtímaatvinnuleysi og koma í veg fyrir brotthvarf af vinnumarkaði.
-
Áframhaldandi vinna að örorkubótasjóði vinnumarkaðarins. Sérfræðihópur hefji störf í október 2026 og skili niðurstöðum eigi síðar en 1. mars 2027. Núverandi fyrirkomulagi og framlagi ríkisins til að jafna örorkubyrði lífeyrissjóða verður viðhaldið þar til viðunandi framtíðarlausn finnst.
-
Átak í einföldun regluverks til að létta byrðar í atvinnurekstri og draga úr kostnaðarþrýstingi. Tillögur eiga að liggja fyrir í janúar 2027.
Stéttarfélögin fagna þessari ábyrgu niðurstöðu og þakkar öllum sem lögðu sitt af mörkum.
„Morgunljóst er að launafólk getur ekki eitt axlað ábyrgðina á að ná niður verðbólgu. Aðkoma ríkisins, sveitarfélaganna og fyrirtækjanna skiptir sköpum. Með þessu samkomulagi höfum við tryggt umsamin launakjör og náð fram mikilvægum fyrirheitum. Nú þarf að fylgja þeim eftir af festu,“ segir Vilhjálmur og tekur Tryggvi formaður Einingar-Iðju heilsuhugar undir þessi orð.
„Lægri verðbólga þýðir minni verðbætur á verðtryggðar skuldir og skapar skilyrði fyrir lægri vöxtum. Það skiptir heimilin gríðarlegu máli. Markmiðið er að þessi vinna skili sér alla leið að eldhúsborðinu, í auknum kaupmætti, léttari greiðslubyrði og betri afkomu launafólks.“