Skil á umsóknum og gögnum í mars 2024

Vert er að minna aftur á að í mars 2024 þarf að skila inn umsóknum og gögnum fyrr en venjulega til sjúkrasjóðs Einingar-Iðju og vegna fræðslusjóða félagsins.

Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna marsmánaðar 2024 fer fram 27. mars vegna páskanna og því þarf að skila gögnum til félagsins í síðasta lagi, fimmtudaginn 21. mars, til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt mánuði síðar.

ATHUGIÐ! Við hvetjum félagsmenn til að sækja rafrænt um styrki inn á Mínum síðum Einingar-Iðju
 

Hér má sjá reglur um skil á læknisvottorði