Skráning hafin í ferðir sumarsins

Í morgun hófst skráning í tvær af þremur orlofsferðum sem Eining-Iðja er með í boði á árinu 2020. Það er ekki eftir neinu að bíða með að skrá sig fyrir þá sem hug hafa á að fara með, því bæði er um að ræða lágmarks- og hámarksfjölda í ferðirnar. Kíkið við á skrifstofur félagsins, hringið í síma 460 3600 eða sendið póst á netfangið ein@ein.is og látið skrá ykkur ef áhugi er fyrir hendi.

  • 6. til 14 júní 2020 - Ítölsku alparnir og Garda
  • 29. ágúst 2020 - Flateyjardalur 

Nánar má lesa um allar ferðirnar þrjár sem boðið er upp á árið 2020 hér.

Hægt er að borga fyrir ferðirnar með kreditkorti og er jafnframt hægt að semja um greiðslur, þ.e. skipta þeim á nokkur tímabil.

Athugið að síðar verður auglýst hvenær byrjað verður að skrá í árlega dagsferð fyrir aldraða félagsmenn.