Spennandi ferðir í boði

Að venju mun félagið bjóða upp á þrjár spennandi ferðir á árinu 2020. Nánar má lesa um hverja ferð fyrir sig með því að smella á hlekkinn í viðkomandi ferð.

Allar nánari upplýsingar um ferðatilhögun og skráning í ferðirnar verður á skrifstofu félagsins á Akureyri, Skipagötu 14, sími 460 3600, frá föstudeginum 3. janúar 2020. Þá verður hægt að skrá sig í utanlandsferðina og í innanlandsferðina. Athugið að síðar verður auglýst hvenær byrjað verður að skrá í eins dags ferðina fyrir eldri félagsmenn.