Styrkur til Grófarinnar - geðverndarmiðstöðvar

Björn ásamt forstöðumanni Grófarinnar, Valdísi Eyju Pálsdóttur sálfræðingi og Friðriki Einarssyni, f…
Björn ásamt forstöðumanni Grófarinnar, Valdísi Eyju Pálsdóttur sálfræðingi og Friðriki Einarssyni, formanni stjórnar Grófarinnar.

Á síðasta stjórnarfundi félagsins var ákveðið að styrkja Grófina – geðverndarmiðstöð um kr. 100.000 og fór Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, í gær og afhenti styrkinn. Björn sagði m.a. við það tækifæri að mjög mikið væri leitað í sjúkrasjóð félagsins og að í fyrra hefðu greiðslur til félagsmanna úr sjúkrasjóðnum numið rúmum 163 milljónum króna. „Það eru tveir málaflokkar sem eru áberandi stærstir þegar við skoðum beiðnir í sjóðinn og eru geðvandamál annar þeirra. Það er því miður alltaf að aukast að verið sé að sækja um í sjóðinn vegna kvíða og ýmissa geðvandamála. Það er áberandi að stærsti hópurinn sem þar á í hlut er unga fólkið okkar. Við vonum að þessi styrkur muni nýtist vel í ykkar góða starfi.“

 

Grófin – geðverndarmiðstöðhóf starfsemi á alþjóðlega geðheilbrigðisdaginn þann 10. október 2013 að frumkvæði og á ábyrgð Geðverndarfélags Akureyrar og nágrennis. Á heimasíðu Grófarinnar segir að Grófin sé ávöxtur grasrótarhóps notenda og fagfólks, sem hittist á vikulegum fundum um tveggja ára skeið. Niðurstaða þeirrar vinnu var að byggja á 10 ára farsælu starfi Hugarafls í Reykjavík og tók Geðverndarfélagið af skarið sumarið 2013 um að taka á leigu húsnæðið að Hafnarstræti 95 og hefja starfsemina alfarið með sjálfboðastarfi, í trausti þess að önnur meginstoð Hugaraflsmódelsins, launað starf fagaðila, yrði að veruleika í fyllingu tímans með stuðningi opinberra aðila. 

Grófin – geðverndarmiðsöð starfar samkvæmt hugmyndafræði valdeflingar (Empowerment), þar sem áherslan er á að einstaklingurinn taki ábyrgð á eigin bata og að öll vinna fari fram á jafningjagrunni. 

Innan Grófarinnar starfar einnig Unghugahópur, en það er hópur hugsaður meira fyrir yngra fólkið – 18 ára og eldri, en hægt er að kynna sér þann hóp, sem og fleira tengt Grófinni á heimasíðunni þeirra.

Markmið Grófarinnar

  • Að skapa tækifæri fyrir þá sem glíma við geðraskanir að vinna í sínum bata á eigin forsendum og eigin ábyrgð í samræmi við hugmyndafræði valdeflingar.
  • Að skapa vettvang fyrir alla þá sem vilja vinna að geðverndarmálum á jafningjagrunni, hvort sem þeir kallast notendur geðheilbrigðisþjónustunnar, fagaðilar, aðstandendur þeirra sem glíma við geðraskanir, eða eru einfaldlega áhugamenn um framfarir í geðheilbrigðismálum.
  • Að bæta lífsgæði þátttakenda.
  • Að efla virkni fólks sem glímir við geðsjúkdóma í hinu daglega lífi.
  • Að standa fyrir hópastarfi fyrir notendur og aðstandendur.
  • Að standa fyrir fræðslu fyrir notendur og aðstandendur.
  • Að stuðla að aukinni þekkingu á bataferlinu með áherslu á að hægt sé að ná bata og að hægt sé að fara fjölbreyttar leiðir í bataferlinu.
  • Að miðla von og reynslu milli notenda. Vonin er lykilatriði í því að ná bata.
  • Að vinna að fræðslu og forvörnum í samfélaginu til að auka skilning og draga úr fordómum gagnvart þeim sem eru að glíma við geðraskanir.