Trúnaðarmannanámskeið, hluti 2, stendur nú yfir

Nú stendur yfir trúnaðarmannanámskeið, 2. hluti, sem að þessu sinni fer fram á rafrænanan hátt. Námskeiðið hófst í gær og lýkur á morgun. Á námskeiðinu kynnast nemendur starfsemi stéttarfélagsins og réttindum félagsmanna. Einnig læra nemendur á innihald og uppbyggingu kjarasamninga og helstu túlkun þeirra, ásamt lestri launaseðla og uppbyggingu trygginga.

Leiðbeinandi í gær var Sigurlaug Gröndal, frá Félagsmálaskóla Alþýðu, og fór hún yfir lestur launaseðla og launaútreikninga. Í dag sáu formaður og varaformaður félagsins um fræðsluna þegar þau fóru yfir kjarasamninga og félagið og á morgun mun Guðmundur Hilmarsson, frá Félagsmálaskóla Alþýðu, fara yfir almannatryggingar og lífeyrissjóði.

Næstu námskeið

Í apríl verður 3. hluti kenndur, sá fjórði í maí og svo er stefna á að bjóða aftur upp á fyrsta hluta sem fyrst eftir það. Fljótlega verða senda bréf á þá trúnaðarmenn sem eiga eftir að sitja hluta 3 og hluta 4. Námskeiðin eru trúnaðarmönnum að kostnaðarlausu.

Þeir trúnaðarmenn félagsins sem vilja sækja námskeiðin eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku sína til félagsins í síma 460 3600 eða á netfangið ein@ein.is 

Sjá nánar hér