Vefverslunin er alltaf opin

Í vefverslun félagsins er hægt að versla Útilegukortið og Veiðikortið. Vinna stendur yfir við að setja inn í kerfið gistimiða sem gilda á fjögur Berjaya hótel og tvö Edduhótel.

Kortin og gistimiðar eru EKKI til sölu á skrifstofum félagsins, verða eingöngu til sölu í vefversluninni sem finna má á Mínum síðum félagsins! 

Kortin eru niðurgreidd af félaginu og kostar Útilegu kortið kr. 18.900 og Veiðikortið kr. 6.900.

Hver félagsmaður getur einungis keypt eitt Veiðikort og/eða eitt Útilegukort.

ATH! Það getur verið að tölvupóstur sem kemur frá félaginu (no-reply@ein.is) fari í ruslpóst, þannig að ef ekki kemur póstur frá félaginu eftir kaupin þá þurfið þið að skoða ruslpósthólfið ykkar.

Kaupa kort

Nánari upplýsingar um kortin