Dagsferð Einingar-Iðju verður að þessu sinni þriðjudaginn 18. ágúst 2026
Ekið verður frá Akureyri til Húsavíkur og þaðan siglt með hvalaskoðunarbát frá Norðursiglingu út í Flatey á Skjálfanda.
Lagt verður af stað frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 8:00
Alls eru 80 sæti í boði.
Gönguferð verður um eyjuna með leiðsögn heimamanna. Vert er að huga að því að um er að ræða þó nokkra göngu út í eyjunni.
Veitingar verða í boði.
Ferðin kostar kr. 15.000 á mann. Skráning í ferð mun hefjast um miðjan maí en það verður auglýst sérstaklega. Skráning og greiðsla mun fara fram í gegnum vefverslun félagsins.
