Fékkst þú launahækkun?

Vert er að minna félagsmenn á að 1. apríl sl. urðu launahækkanir samkvæmt núgildandi kjarasamningum Starfsgreinafélags Íslands við bæði ríki og sveitarfélög þann 1. apríl 2026. Einnig varð smá hækkun hjá þeim sem starfa á almenna markaðinum þann 1. apríl sl. vegna kauptaxtaauka.

Sjá nánar í eldri fréttum um hækkanirnar

SGS hefur sett kauptaxta upp í tæknilausninni GRID sem býður notendum upp á einfalt og gagnvirkt viðmót til að finna út laun skv. kauptöxtum o.fl.

  • Kauptaxtar SGS vegna starfsfólks á almenna vinnumarkaðinum GRID (athugið hvort rétt tímabil sé valið í GRID)
  • Kauptaxtar SGS vegna starfsfólks í veitinga-, gisti- og þjónustustarfsemi GRID (athugið hvort rétt tímabil sé valið)
  • Kauptaxtar SGS vegna félagsfólks sem starfar hjá ríkinu GRID (athugið hvort rétt tímabil sé valið)
  • Kauptaxtar SGS vegna félagsfólks sem starfar hjá sveitarfélagi GRID (athugið hvort rétt tímabil sé valið)

Eining-Iðja hvetur félagsmenn til að fylgjast vel með á launaseðlinum hvort þessar launahækkanir skili sér ekki alveg örugglega til þeirra.