Eining-Iðja mun halda þrjá opna fundi á félagssvæðinu í janúar 2026, á Dalvík, í Fjallabyggð og á Grenivík. Á þessum fundum verður m.a. farið yfir nýjungar í orlofsmálum félagsins og helstu niðurstöður úr nýlegri Gallup könnun Einingar-Iðju.
Dagskrá
- Nýjungar í orlofsmálum félagsins.
- Kynning á Gallup könnun félagsins.
- Önnur mál.
Félagar, fjölmennum!
- Fundur í svæðisráði Hríseyjar- og Dalvíkurbyggðar
- Þriðjudagur 20. janúar 2026
- Dalvík: Í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju kl. 17:00
- Fundur í svæðisráði Fjallabyggðar
- Þriðjudagur 20. janúar 2026
- Fjallabyggð: Á skrifstofu félagsins Eyrargötu 24b. kl. 19:00
- Fundur í svæðisráði Grýtubakkahrepps
- Miðvikudagur 21. janúar 2026
- Grenivík: Á veitingastaðnum Kontórnum kl. 17:00