12. mars kl. 9:00 var opnað fyrir rafrænar umsóknir vegna úthlutunar orlofshúsa og íbúða félagsins sumarið 2026 sem og Orlof að eigin vali. Félagsmenn þurfa að sækja um sumarvikur og orlof að eigin vali á rafrænan hátt á Mínum síðum félagsins.
ATH! - EKKI þarf að sækja um íbúð á Spáni, það er opið fyrir bókanir sex mánuði fram í tímann
Úthlutað verður rafrænt samkvæmt punktakerfi og því skiptir ekki máli hvenær félagsfólk sækir um orlofshús, íbúðir eða Orlof að eigin vali á úthlutunartímabilinu.
Til að sækja um er smellt á bláa takkann Sækja um við Sumarúthlutun Einingar-Iðju 2026 í orlofsrammanum á persónublaðinu.

Hér fyrir neðan má sjá helstu dagsetningar vegna úthlutunar sumarsins.
Félagsmenn hafa kost á að senda inn þrjár umsóknir, eina aðalumsókn og tvær til vara. Í valflipanum svæði þarf að velja úr þeim orlofskostum sem eru í boði eða Orlof að eigin vali og í valflipanum tímabil þarf að velja ákveðna viku.

Í dæminu hér fyrir ofan er búið að velja eina eign og Orlof að eigin vali og því má velja eina eign í viðbót. Einnig má sleppa að velja Orlof að eigin vali og velja þrjár eignir. Á meðan umsóknarferlið er opið er hægt að færa valkosti á milli aðalvals og hvað á að vera til vara, eyða og bæta við eins og þörf krefur.
Ekki er hægt að færa til bókanir á sumarleigutímabili.
Einungis eru vikuleigur í boði, frá fimmtudegi til fimmtudags á eftirfarandi stöðum:
Upplýsingar um eignirnar má finna á Mínum síðum félagsins