Bárðardalur-Laugafell-Skagafjörður
Farið verður í dagsferð um Bárðardal inn í Laugafell og niður í Skagafjörð laugardaginn 26. ágúst 2023.
Hámarksfjöldi er 90 manns.
Farið verður með rútu frá Akureyri, lagt verður af stað kl. 9:00. Nauðsynlegt er að hafa með sér nesti til dagsins, annað en grillmat.
Skráning í ferðirna hefst þriðjudaginn 3. janúar 2023 á skrifstofum félagsins á Akureyri, á Dalvík og í Fjallabyggð, í síma 460 3600 eða með því að senda póst á netfangið ein@ein.is