"Fjallaferðin" 2024

Kerlingarfjöll

Farið verður í dagsferð í Kerlingarfjöll laugardaginn 24. ágúst 2024. Tekið skal fram að þetta er löng dagleið, ekki innan við 13 tíma ferð, og vegir ekki góðir hluta leiðarinnar. Farið verður eins og leið liggur í Blöndudal og þaðan suður Kjöl í Kerlingarfjöll með viðkomu á ýmsum stöðum, m.a. Hveravöllum.

  • Hámarksfjöldi er 90 manns. Hafa þarf með sér nesti fyrir allan daginn.
  • Farið verður með rútu frá Akureyri kl. 8:00.
  • Leiðsögumaður verður með í för.
  • Ferðin kostar kr. 10.000 á mann.
  • Innifalið er akstur, leiðsögn og áningargjöld.

Skráning í ferðina hefst miðvikudaginn 3. janúar 2024 á skrifstofum félagsins á Akureyri, á Dalvík og í Fjallabyggð, í síma 460 3600 eða með því að senda póst á netfangið ein@ein.is