Úthlutunarreglur

Til þess að gæta sem mestrar sanngirni við úthlutun orlofshúsa og orlofsíbúða notar félagið punktakerfi sem þykir hafa reynst vel. Hver félagsmaður vinnur sér inn einn punkt fyrir hvern mánuð sem hann greiðir til félagsins. Engu máli skiptir hve há upphæð félagsgjaldsins er í hverjum mánuði. Þeir sem síðan hafa safnað flestum punktum þegar kemur að úthlutun ganga fyrir þegar mikil ásókn er í húsin. Þegar félagsmaður fær úthlutað tíma í orlofshúsi dregst tiltekinn punktafjöldi frá inneign viðkomandi þannig að tryggt er að þeir sem fá úthlutað dvöl í orlofshúsi eru ekki áfram efstir á blaði, en halda þó auðvitað áfram að safna sér punktum fram að úthlutun næsta árs með því að greiða félagsgjöld.

ATH! Við afbókun verður reynt að endurleigja viðkomandi eign og ef það gengur eftir fæst inneign sem hægt er að nýta síðar vegna orlofshúsa eða íbúða. Einungis er endurgreitt vegna veikinda, andláts eða vegna óveðurs/ófærðar skv. viðvörun Veðurstofu Íslands.

Frádráttur orlofspunkta er mismunandi eftir tímabilum. Ekki eru dregnir frá punktar að vetri til.

  • Allt að 18 punktar í frádrátt:
    • Fyrir Orlof að eigin vali.
  • 24 punktar í frádrátt:
    • Fyrir fyrstu tvær og síðustu sumarvikuna.
  • 36 punktar í frádrátt:
    • Fyrir aðrar sumarvikur

Félagsmenn þurfa að sækja um sumarvikur á rafrænan hátt í gegnum Orlofsvef félagsins.