Félagið á 23 orlofshús víða um land og 11 íbúðir í höfuðborgarrsvæðinu, þar af eru tvær þeirra sjúkraíbúðir.
Nánari upplýsingar um eignirnar má finna á Mínum síðum félagsins þar sem alltaf er hægt að bóka orlofshús og íbúðir um það bil sex mánuði fram í tímann, fyrir utan tímabilið þegar sumarúthlutun er í gangi.
Hér má finna leiðbeiningar fyrir helstu aðgerðir inni á nýjum Mínum síðum félagsins, m.a. hvernig á að bóka orlofshús.
Sumarúthlutun
Sótt er um orlofshús, orlofsíbúðir og Orlof að eigin vali inn á Mínum síðum félagsins þegar sumarúthlutun orlofshúsa stendur yfir.