39. þing AN

Dagana 24. og 25. september 2026 verður 39. þing Alþýðusambands Norðurlands (AN) haldið á Illugastöðum í Fnjóskadal.

Þing AN skal halda annað hvert ár. Fulltrúar á AN þingi eru 100 sem skiptast á milli aðildarfélaga eftir fjölda félagsmanna skv. skýrslu til ASÍ um félagsmenn frá árinu á undan. Öll félög eiga rétt á að senda að lágmarki tvo fulltrúa.

Eining-Iðja á rétt á að senda fulltrúa á þingið og mun fjöldi þeirra liggja fyrir er nær dregur. (Félagið átti rétt á 41 fulltrúa fyrir tveimur árum)

Nánar má forvitnast um þingið hér, er nær dregur