Allar skrifstofur félagsins - Breytt opnun

Vegna námskeiðs starfsmanna verður breytt opnun á skrifstofum félagsins fimmtudaginn 29. janúar 2026.

  • Á Akureyri verður lokað á milli kl. 10:00 til 13:00
  • Á Dalvík og Fjallabyggð verður lokað allan daginn.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.

Við minnum félagsmenn á að sækja rafrænt um styrki, bæði úr fræðslusjóði og sjúkrasjóði, og sjúkradagpeninga inn á Mínum síðum Einingar-Iðju, þar inni er einnig pantað eða sótt um og greitt fyrir orlofshús og íbúðir.

Vert er að benda á að á Mínum síðum Einingar-Iðju má finna hnapp til að senda inn fyrirspurn eða stofna mál.

Einnig er hægt að senda póst og fyrirspurnir á ein@ein.is

Starfsfólk Einingar-Iðju.