Ársfundur Stapa 2026

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn mánudaginn 27. apríl 2026 í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri kl. 14:00. Félagið á rétt á að senda 42 fulltrúa á fundinn. Kosning þessara fulltrúa fer fram árlega á aðalfundi félagsins.

Ársfundurinn er opinn öllum sjóðfélögum. Atkvæðisrétt hafa þeir einir sem kosnir hafa verið á fundinn sem fulltrúar aðildarfélaga sem að sjóðnum standa.

Á dagskrá eru venjuleg ársfundarstörf og eru drög að dagskrá eftirfarandi

  1. Setning ársfundar
  2. Skýrsla stjórnar, kynning og afgreiðsla ársreiknings og tryggingafræðilegs mats
  3. Fjárfestingarstefna
  4. Hluthafastefna
  5. Stjórnarkjöri lýst
  6. Kosning löggilts endurskoðanda
  7. Kosning utanaðkomandii aðila í endurskoðunarnefnd
  8. Starfskjarastefna
  9. Ákvörðun um laun stjórnar
  10. Val á fulltrúum í nefnd um laun stjórnar
  11. Önnur mál