Föstudaginn 16. maí 2025 kl. 12:00 lokar fyrir skráningar í "Fjallaferð" ársins.
Austurland 21. og 22. ágúst 2025
Lagt verður af stað kl 9:00 að morgni frá Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14 Akureyri, fimmtudaginn 21. ágúst.
Keyrt verður austur í Sænautasel, þaðan í Kárahnjúka, niður í Fljótsdal og gist á Eiðum þar sem snæddur verður kvöldverður.
Ýmislegt spennandi verður skoðað á leiðinni og fræðst um t.d. Skriðuklaustur og Gestastofuna.
Eftir morgunverð föstudaginn 22. ágúst verður keyrt í Borgarfjörð Eystri þar sem skoðað verður þorpið Bakkagerði, heilsað verður upp á lunda í Hafnarhólma og borðaður hádegismatur.
Keyrt heim á leið, yfir Hellisheiði Eystri ef veður leyfir.
Komið verður við á Vopnafirði og í Minjasafninu í Burstafelli.
Komið heim til Akureyrar um kl 19:00.
Skráning í ferðina fer fram á skrifstofum félagsins á Akureyri, á Dalvík og í Fjallabyggð og í síma 460 3600. Skráningu lýkur kl. 12:00 föstudaginn 16. maí 2025.