Kynning fyrir trúnaðarmenn

Kynning fyrir nýja og núverandi trúnaðarmenn hjá Einingu-Iðju

9. apríl 2026
Milli kl. 9:00 og 10:30
Í sal Einingar-Iðju, Skipagötu 14- 600 Akureyri

Boðið verður upp á kynningu þar sem farið er yfir hlutverk og mikilvægi trúnaðarmanna. Fjallað verður um helstu þætti sem snúa að ábyrgð, réttindum og skyldum trúnaðarmanna, auk kynningar á starfsemi félagsins og öðrum mikilvægum atriðum sem tengjast hlutverkinu.

Kynningin er ætluð bæði nýjum og núverandi trúnaðarmönnum og er mikilvægur grunnur fyrir öfluga og markvissa hagsmunagæslu.

Kynningin fer fram á íslensku.

Hlökkum til að sjá ykkur !