26. mars 2026 er síðasti dagur til að senda inn rafræna umsókn vegna orlofshúsa og íbúða félagsins í sumar og vegna Orlof að eigin vali.
Félagsmenn þurfa að sækja um sumarvikur og orlof að eigin vali á rafrænan hátt á Mínum síðum félagsins.
ATH! - EKKI þarf að sækja um íbúð á Spáni, það er opið fyrir bókanir sex mánuði fram í tímann
Úthlutað verður rafrænt samkvæmt punktakerfi og því skiptir ekki máli hvenær félagsfólk sækir um orlofshús, íbúðir eða Orlof að eigin vali á úthlutunartímabilinu.
Skila þarf inn umsókn fyrir kl. 22:00 fimmtudaginn 26. mars nk.
Stefnt er á að úthlutun fari fram þriðjudaginn 31. mars.
Til að sækja um er smellt á bláa takkann Sækja um við Sumarúthlutun Einingar-Iðju 2026 í orlofsrammanum á persónublaðinu.

Hér fyrir neðan má sjá helstu dagsetningar vegna úthlutunar sumarsins.
- 12. mars kl. 9.00 opnar fyrir umsóknarferlið vegna sumars 2026.
- Umsóknarferlið er opið til kl. 22:00 fimmtudaginn 26. mars.
- Stefnt er á að úthlutun fari fram 31. mars, þar sem hæsta punktastaða ræður úthlutun. Niðurstöður úthlutunar sendar í sms/tölvupósti til félagsfólks. Þá verður sendur greiðsluhlekkur til þeirra sem fengu orlofshús eða íbúð. Á Mínum síðum geta félagsmenn séð hvaða eign þeir fengu úthlutað.
- Greiða þarf íbúð með greiðslukorti fyrir 9. apríl að öðrum kosti fellur úthlutunin niður.
- Mánudaginn 13. apríl kl. 12.00 opnar fyrir alla í „fyrstir koma, fyrstir fá“. Þá er opnað fyrir þær vikur sumars sem eftir verða.
Félagsmenn hafa kost á að senda inn þrjár umsóknir, eina aðalumsókn og tvær til vara. Í valflipanum svæði þarf að velja úr þeim orlofskostum sem eru í boði eða Orlof að eigin vali og í valflipanum tímabil þarf að velja ákveðna viku.

Í dæminu hér fyrir ofan er búið að velja eina eign og Orlof að eigin vali og því má velja eina eign í viðbót. Einnig má sleppa að velja Orlof að eigin vali og velja þrjár eignir. Á meðan umsóknarferlið er opið er hægt að færa valkosti á milli aðalvals og hvað á að vera til vara, eyða og bæta við eins og þörf krefur.
Ekki er hægt að færa til bókanir á sumarleigutímabili.
Einungis eru vikuleigur í boði, frá fimmtudegi til fimmtudags á eftirfarandi stöðum:
- Bjarteyjarsandur í Hvalfirði (1 hús)
- Brekkuskógur (1 hús)
- Einarsstaðir (3 hús)
- Flókalundur í Vatnsfirði (1 hús)
- Flúðir (2 hús)
- Húsafell (Gæludýr leyfð) (1 hús)
- Höfuðborgarsvæðið (8 íbúðir)
- Illugastaðir (8 hús)
- Munaðarnes (1 hús)
- Súðavík (1 hús)
- Svignaskarð ( 2 hús)
- Tjarnargerði í Eyjafirði (1 hús)
- Vaðnes (1 hús)
- Ölfusborgir (1 hús)
Upplýsingar um eignirnar má finna á Mínum síðum félagsins
Félagsmenn! Skoðið vel punktastöðuna ykkar á Mínum síðum félagsins. Við yfirfærslu punkta í nýtt kerfi fóru punktar rétt inn hjá langflestum en hjá sumum fór bara hluti punkta og öðrum ekki neitt. Þegar umsóknarferli lýkur þá verður farið yfir punktastöðu þeirra sem sóttu um og lagað það sem laga þarf, en til að flýta því ferli væri fínt að fá sendar ábendingar með nafni og kennitölu til asgrimur[@]ein.is eða með því að hringja í 460 3600. 