Trúnaðarmannanámskeið - Vinnueftirlit/vinnuvernd (fjarnám)

Í byrjun árs 2024 var tekið í notkun nýtt skipulag við kennslu á trúnaðarmannanámskeiðum félagsins. Námið er nú 12 sjálfstæðar einingar í stað fjögurra hluta þar sem nokkrar námseiningar voru kenndar saman. Sex námskeiðanna eru kenndir í fjarnámi en hin sex í staðnámi.

Staðnám verður nú tveir dagar í senn (í stað þriggja daga áður), en hvor dagur er eitt námskeið.

Mánudaginn 15. apríl 2024 verður námskeiðið Vinnueftirlit/vinnuvernd kennt í fjarnámi.

Skráning á námskeið fer fram á vef Félagsmálaskólans.