Á morgun er síðasti skiladagur fyrir sumarúthlutun

Félagsmenn hafa til kl. 22:00 á morgun, fimmtudaginn 26. mars, til að skila inn rafrænni umsókn vegna úthlutunar orlofshúsa og íbúða félagsins í sumar sem og vegna Orlofs að eigin vali. Félagsmenn þurfa að sækja um á rafrænan hátt á Mínum síðum félagsins, smellið á bláa takkann Sækja um við Sumarúthlutun Einingar-Iðju 2026 í orlofsrammanum á persónublaðinu.

Félagsmenn! Skoðið vel punktastöðuna ykkar á Mínum síðum félagsins. Við yfirfærslu punkta í nýja kerfið þá virðist vera sem sumir punktar hafi farið rétt inn en hjá sumum fór bara hluti punkta og öðrum ekki neitt. Þegar umsóknarferli lýkur þá verður farið yfir punktastöðu þeirra sem sóttu um og lagað það sem laga þarf, en til að flýta því ferli væri fínt að fá sendar ábendingar með nafni og kennitölu til asgrimur[@]ein.is eða með því að hringja í 460 3600.  

ATH! - EKKI þarf að sækja um íbúð á Spáni, það er opið fyrir bókanir sex mánuði fram í tímann 

Hér fyrir neðan má sjá helstu dagsetningar vegna úthlutunar sumarsins.

  • 12. mars kl. 9.00 opnar fyrir umsóknarferlið vegna sumars 2026.
  • Umsóknarferlið er opið til kl. 22:00 fimmtudaginn 26. mars.
  • Stefnt er á að úthlutun fari fram 31. mars, þar sem hæsta punktastaða ræður úthlutun. Niðurstöður úthlutunar sendar í sms/tölvupósti til félagsfólks. Þá verður sendur greiðsluhlekkur til þeirra sem fengu orlofshús eða íbúð. Á Mínum síðum geta félagsmenn séð hvaða eign þeir fengu úthlutað.
  • Greiða þarf íbúð með greiðslukorti fyrir 9. apríl að öðrum kosti fellur úthlutunin niður.
  • Mánudaginn 13. apríl kl. 12.00 opnar fyrir alla í „fyrstir koma, fyrstir fá“. Þá er opnað fyrir þær vikur sumars sem eftir verða.

Félagsmenn hafa kost á að senda inn þrjár umsóknir, eina aðalumsókn og tvær til vara. Í valflipanum svæði þarf að velja úr þeim orlofskostum sem eru í boði eða Orlof að eigin vali og í valflipanum tímabil þarf að velja ákveðna viku.

Í dæminu hér fyrir ofan er búið að velja eina eign og Orlof að eigin vali og því má velja eina eign í viðbót. Einnig má sleppa að velja Orlof að eigin vali og velja þrjár eignir. Á meðan umsóknarferlið er opið er hægt að færa valkosti á milli aðalvals og hvað á að vera til vara, eyða og bæta við eins og þörf krefur.

Ekki er hægt að færa til bókanir á sumarleigutímabili.

Einungis eru vikuleigur í boði, frá fimmtudegi til fimmtudags á eftirfarandi stöðum:

  • Bjarteyjarsandur í Hvalfirði (1 hús)
  • Brekkuskógur (1 hús)
  • Einarsstaðir (3 hús)
  • Flókalundur í Vatnsfirði (1 hús)
  • Flúðir (2 hús)
  • Húsafell (Gæludýr leyfð) (1 hús)
  • Höfuðborgarsvæðið (8 íbúðir)
  • Illugastaðir (8 hús)
  • Munaðarnes (1 hús)
  • Súðavík (1 hús)
  • Svignaskarð ( 2 hús)
  • Tjarnargerði í Eyjafirði (1 hús)
  • Vaðnes (1 hús)
  • Ölfusborgir (1 hús)

Upplýsingar um eignirnar má finna á Mínum síðum félagsins