Enn eru nokkrir vinningar eftir - færð þú þann næsta?

Í fyrra fékk Kristján Tryggvi vinning að upphæð kr. 150.000. Hér má sjá er Björn formaður afhenti Kr…
Í fyrra fékk Kristján Tryggvi vinning að upphæð kr. 150.000. Hér má sjá er Björn formaður afhenti Kristjáni Tryggva vinninginn.

Vert er að minna á að Gallup er að framkvæma könnun um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLS starfsgreinafélags. Könnunin er jafnframt happdrættismiði því allir sem taka þátt geta unnið veglega vinninga.  20 þátttakendur lenda strax í happdrættispotti, 10 frá hvoru félagi, og fá vinningshafar tilkynningu fljótlega eftir að búið er að svara könnuninni. Um er að ræða gjafakort að verðmæti kr. 15.000. Enn eru nokkrir vinningar eftir!

Í fyrra tóku allir tíu þátt frá félaginu  þannig að allir vinningarnir gengu út, ólíkt síðustu árum. 2019 svöruðu t.d. aðeins sjö þeirra sem dregin voru út sem þýddi því miður að þrír félagsmenn Einingar-Iðju misstu af því að fá vinning upp á kr. 15.000 og sex árið 2018. Það getur borgað sig að taka þátt! 

Átta veglegir vinningar eru í boði þegar könnuninni er lokið. Tveir vinningar að upphæð  kr. 150.000 og tveir kr. 50.000 auk fjögurra vikudvala í orlofsíbúðum félaganna.

Það er von félagsins að þeir sem valdir voru til þátttöku gefi sér tíma til að svara þegar leitað verður til þeirra því það er áríðandi að fá sem nákvæmastar niðurstöður og að allir svari svo hægt verði að nýta niðurstöðurnar í þágu þekkingar og til hagsbóta fyrir félagsmenn.

Nú þegar hafa þó nokkur fjöldi svarað könnuninnni á netinu en starfsmenn frá Gallup byrjuðu nýverið að hringja í þá félagsmenn sem enn eiga eftir að svara. Bæði er hægt að svara símleiðis og í gegnum netið með því að fara inn á vefslóð sem gefin er upp í bréfinu sem félagsmennirnir fengu og nota lykilorð sem þeim var úthlutað.

Þín svör skipta máli – takk fyrir að taka þátt!

Niðurstöður fyrri kannana má finna hér