Formannafundur ASÍ í næstu viku

Alþýðusamband Íslands heldur þing á tveggja ára fresti en þau ár þegar ekki er þing er boðað til fundar formanna allra aðildarfélaga og deilda innan ASÍ. Slíkur fundur verður haldinn  miðvikudaginn 16. október nk. en þar verður m.a. farið yfir glænýja hagspá ASÍ, rætt um útfærslur á styttingu vinnuvikunnar og farið yfir stöðuna á forsendum kjarasamninga. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, mun sitja fundinn fyrir hönd félagsins.

Formannafundur ASÍ 2019
Hótel Reykjavík Natura, 16. október 2019

9:30 Skráning og afhending fundargagna
10:00 Ávarp forseta ASÍ
10:30 Hagspá
10:50 Kaffihlé
11:00 Stöðumat á forsendum kjarasamninga
12:30 Hádegishlé
13:15 Stytting vinnuvikunnar
14:45 Kaffihlé
15:30 Önnur mál
16:00 Áætluð fundarlok