Nýr framkvæmdastjóri SGS mættur til starfa

Í vikunni hóf Björg Bjarnadóttir, nýráðinn framkvæmdastjóri SGS, formlega störf hjá Starfsgreinasambandinu. Á vef SGS segir að Flosi Eiríksson, fráfarandi framkvæmdastjóri SGS, mun verða Björgu innan handar næstu vikurnar og koma henni inn í dagleg störf. Björg kemur til með að stýra skrifstofu SGS og bera ábyrgð á daglegum rekstri sambandsins ásamt því að sinna fjölmörgum öðrum verkefnum.

Á vef SGS segir jafnframt að aðspurð hvernig henni lítist á starfið segist Björg vera spennt að takast á við þau krefjandi verkefni sem framundan eru hjá sambandinu: „Ég hef góða starfsreynslu úr verkalýðshreyfingunni sem mun nýtast afar vel. Það mun auðvitað taka tíma að komast inn í starfið en það hefur verið vel tekið á móti mér hér og ég sé ýmis tækifæri til góðra verka“.

Eining-Iðja býður Björgu velkomna til starfa og óskar henni velfarnaðar í störfum sínum fyrir félög Starfsgreinasambandsins.