Samkeppni um nafn á nýja rannsóknarstofnun í vinnumarkaðsfræðum

Alþýðusamband Íslands og BRSB hafa stofnað rannsóknarstofnun í vinnumarkaðsfræðum til að efla rannsóknir á sviði vinnumarkaðar, félags- og efnahagsmála. Stofnuninni er ætlað að dýpka umræðuna um kaup og kjör og koma þannig með aukið fóður inn í baráttu launafólks fyrir bættri afkomu og betri lífsskilyrðum. Hún verður þverfagleg og sjálfstæð í sínum störfum.

ASÍ og BSRB óska eftir tillögum um nafn á stofnunina. Nafnið þarf að vera þjált í notkun og gefa stofnuninni jákvæða ímynd.
Tillögum um nafn þarf að skila inn fyrir 16. desember 2019 á netfangið asi@asi.is merkt „Nafnasamkeppni 2019“. Nafn, símanúmer og netfang höfundar þarf að fylgja með. Frjálst er að senda inn fleiri en eina tillögu.

Verðlaun að upphæð kr. 50.000 verða veitt fyrir bestu tillöguna. Ef fleiri en einn leggja til vinningsnafnið verður vinningshafinn dreginn út.