Seðlabankinn lækkar stýrivexti í 1,75%

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,5%. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 1,75%.

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands hefur einnig ákveðið að aflétta 2% kröfu um sveiflujöfnunarauka á fjármálafyrirtæki og verður hann því 0%.

Fjármálastöðugleikanefnd og peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hafa fundað í vikunni. Útbreiðsla COVID-19 veirunnar og þær aðgerðir sem gripið hefur verið til hér á landi og annars staðar til að hefta framgang veirunnar hafa neikvæð áhrif á efnahagshorfur og fjármálaleg skilyrði. Nefndirnar hafa skoðað til hvaða mótvægisaðgerða þær geti gripið og eru fyrrnefndar ákvarðanir teknar í því ljósi. Bæði þjóðarbúið og fjármálakerfið hér á landi eru vel í stakk búin til þess að takast á við áföll og eru nefndirnar tilbúnar til þess að beita þeim tækjum sem þær hafa yfir að ráða til þess að draga úr neikvæðum efnahagslegum áhrifum þessa áfalls.