STREYMI frá málstofu í dag - Staðgreiðsla og skattbyrði í 30 ár

Henný Hinz, deildarstjóri hagdeildar ASÍ
Henný Hinz, deildarstjóri hagdeildar ASÍ

Í dag, fimmtudaginn 9. janúar, milli kl. 12.00-13.00 verður málstofa um Staðgreiðslu og skattbyrði í 30 ár, í Háskóla Íslands. Smelltu hér til að fylgjast með beinu streymi frá málstofunni. 

Frummælendur eru Axel Hall, lektor við Háskólann í Reykjavík, og Henný Hinz, deildarstjóri hagdeildar ASÍ. Málstofan er unnin í samstarfi við ASÍ, og mun rýna í núverandi skattkerfi tekjuskatts sem hefur verið við lýði frá upptöku staðgreiðslunnar 1988. Skattkerfið verður greint, eiginleikum þess lýst og fjallað um fyrirhugaðar breytingar á því. Fyrirspurnir og umræður verða að erindum loknum, og síðan verður boðið upp á kaffiveitingar. Allir velkomnir.

Dagskrá fyrir málstofuna:

12.00 – Gylfi Zoega, formaður ritstjórnar TVE, býður gesti velkomna

12.05 – Axel Hall, höfundar greinarinnar Staðgreiðsla og skattbyrði í 30 ár

12.20 – Henný Hinz, deildarstjóri hagdeildar ASÍ

12.30-13.00 – Spurningar úr sal